vic
17.02.2008 20:44:26 / Stella

HVAR ERU MYNDIRNAR OKKAR!!!!

Hæjj stelpur ekki hafi þið hugmynd hvað myndirnar okkar eru????
Kv Lísa ég er samt inná hjá Stellu mitt virkar ekki !



» 15 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 19:20:00 / Andrea sig

13 nóv:)

hæhæ

 

ætla að reyna að lífga smá uppá þessa síðu og koma með eitt stykki blogg :)

 

Ég er að hlusta á eitt flottasta jólalag sem að ég hef heyrt...þetta lag get ég hlustað á allt árið :P Lagið heitir :Þegar jólin koma...minnir að það sé með á móti sól. Hljótið nú að kannast við þetta lag.

 

Enn núna eru við flestar í VIC byrjaðar aftur í körfu, ekki leiðinlegt :D sumir í góðu formi enn ég t.d er í lélegasta formi sem að ég hef einhvern tíman verið í  :/ Svo get ég ekki verið mikið með útaf bakinu, það er víst eitthvað bilað eins og allt annað í mínum líkama ;(

 

Annars er voðalega lítið að frétta af mér, fór með bíllinn minn í viðgerð í morgun og núna ek ég bara um á Eldrauðum yaris :P er öruglega búin að drepa á honum svona 6  sinnum á þessum stutta tíma sem ég er búin að vera með hann :$ eðal driver hérnamegn.

 

Stelpur: við verðum að fara að vera virkari i þessari síðu :) setja myndir og svona inna.og fara svo að taka hitting,

enn þetta verður ekki lengra, nenni ekki að bloggameira, enda er þetta bara eitthvað rugl alltaf hjá manni :/

 

bæjó er farin á æfingu:D

 

Andrea sig 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:53:13 / Lísa

Well bitches

Þið kunnið ekki að skammast ykkar, ég kæri ykkur fyrir vanrækslu á barninu "heimasíðuni¨okkar og þið gerið ekki neitt, ég er bara orðlaus (að ég setti gula stafi í 18 ) , -já allveg orðlaus, næ ekki upp í nefið á mér

núna eru svo mörg böll í skólanum ykkar og mér þætti mjög gaman að sjá smettin á  ykkur ;)

 

en annar er bara allt súper að frétta ;) taumlaus gleði


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 00:29:13 / Andrea sig

bloggedýtime

jahh gooden tagen :D ég ákvað að koma með hérna eitthvað undurfagurt blogg þar sem eg hef ekkert að gera, er í vinnuni á næturvakt og rosalega róleg..sit bara hérna með magic :P

 ég skellt mér til mall of america í shoping ferð með systur minni sem var nú Alls ekki leiðinlegt:D náði nú að versla alveg ágætilega...nokkur skópör og svona fínerý.

það var heavy gott veður þarna eða eitthvað um 20 stiga hita og glamandi sól, allavegna 2 eða 3 daga :) núna er bara stefanan að byrja að leggja fyrir og fara aftur á næsta ári:D

 ég er bara að vinna núna, beilaði á skólanum...sá smá eftir því enn það er nú ekki leiðinlegt að eiga alltaf nægan pening :P

 enn ég nenni ekki að blogga meira...ég verð bara sljó á því að horfa svona lengi á skjáinn...ekki besta leiðin til þess að halda manni vakandi :/

 i´m out

andrea sig ;)

 

heyy gugga hvernig væri nú að fara að koma með svona LAANGGTT blogg eins þú varst nú dugleg að gera;) ?


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 20:56:32 / Lísa

hæjj fokkers;)

hæjj mongós:D<3

Vá hvað ég skemmti mér vel að skoða gamlar myndir;) þið eigið eftir að vilja hittast verý badlý, ef þið skoðið þær, vá samt hvað það var alltaf gaman hjá okkur.... Dem us að vera með kæró og í menntaskóla, hvað er annars að frétta af ykkur

 Smá update af þeim sem ég veit hvað eru að gera þessa stundina 

Stella veik með vírus, Örugglega eftir að hafa að verið að kissa einhvern strák, hehe :P

 Andrea Sig er að versla úr sér augun í mall of america

Gugga er að kúra:(hún var meira að segja svo upptekin við það að ég sá hana ekkert í skólanum í laaaangan tíma)P hehe

Andrea Guð er að spila handbolta með meistaflokk kvenna og í sleik.

Þórdís er að rúnta á FALLEGA bílnum sínum og að kúra;)

Eydís er að meika það í Fb ;)

Magga Smára er örugglega að Höstlast einvher staðar "lots of love";)

Silja er að verslast í versló með dísu, hún er einnig að kúra eins og Gugga

Magga sveins ?????? ekkert búin að heyra í henni, en síðast þegar að ég vissi var hún í partýi á föstudaginn:P

 ég er náttla bara að meika það í skóla og að vera að kúra með kæró:P og margt annað sem er samt ekkert það merkilegt, horfa á sjónvarpið, hugsa um það að taka bílpróf :P en ætla samt ekkert að gera það hvað haldiði að ég sé :O

 

 

Im out ;) 


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 23:18:35 / Magga Smára

bæ í bili :)

Ætlaði bara að skella inn stuttu bloggi og kveðja í bili þar sem ég er að fara í 10 daga frí til Aðalvíkur.. þar eigum við hús og förum þangað á hverju ári... fer á morgun eftir vinnu eitthverntíman... er samt ekkert spennt fyrir því að fara, þetta er ekkert eins spennandi og þegar maður var lítill.. :/ sagði líka við mömmu að 10 dagar væri oooof mikið af því góða og sagði svo að þetta væri síðasta sinn sem ég færi með þeim.... allavega í bili ;) Það er ekkert símasamband þannig það dugar ekkert að hringja í mig :( Í rauninni þá er mér farið að hlakka til að koma heim aftur haha:D kem heim hva... 12 águst minnir mig.. eða á sunnudeginum semsagt. Svo  helgina eftir það er reunionið mikla:D shiitt hvað mig hlakka til!! djamm djamm djamm og svo menningarnótt daginn eftir :'D gerist ekki betra.. taka gott djamm rétt fyrir skólann :D ...... shit, sem þýðir að sumarið er að verða búið :O vááá hvað þetta var fljótt að líða:(   En mig reyndar hlakkar til að byrja í Borgó aftur... Ekki busi lengur múhahaha ;D

En ja.. kíkiði á www.blog.central.is/reunion90 ... Dísa, Sandra, Erla og Eydís búnar að vera svo duglegar að skipuleggja þetta:D Stokkseyri er ferðinni haldið.. Hlakka til að hitta ykkur öll sem eruð að fara:D

En eg bið bara að heilsa öllum og sjáumst elskurnar ;**

 Magga is out ;)

Jul 20, 2007



» 7 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 22:46:30 / Eydís

17. - 18. ágúst !

Jæja kæru skólafélagar !
 
Þá er stóra stundin runnin upp hjá okkur fyrrverandi Selskælingum !
Þórdís
Sandra
Eydís
Erla
 
..hafa tekið sig saman og ákveðið að boða til reunion´s , föstudaginn þann 17.ágúst, og væri þá planið að skella okkur í útilegu yfir eina nótt !
 
Hvaða betri leið til að kveikja aftur í nokkrum gömlum vinaböndum enn eitt íslenskt fyllerí uppí hinni sönnu íslensku sveit !
 
Ennþá hefur staðseting hinnar afelguðu útilegu okkar Selskælinga ekki komið í ljós, enn hún verður væntalega komin inn á fimmtudagskvöldið.
 
Frekari upplýsingar verða birtar á þessari síðu - www.blog.central.is/reunion90 -  og megið þið einnig búast við símtölum frá einhverri okkar í bráð og við endilega hvertjum við til þess að þið dreifið þessu til allra sem útskrifuðust úr Seljaskóla þann 7.júní 2006 !
Með fyrirfram þökkum um gott samstarf!
Mynd númer 81
Sandra - s: 693-9986 , Þórdís - s: 8682329            Erla - s: 849-1974 , Eydís - s: 865-4835
 
 
www.blog.central.is/reunion90 

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 18:06:15 / Magga Smára

bleller;)

Hæhæ allir:D langt síðan að ég bloggaði þannig ég ætla að skella einu nuna:P hafa það samt bara stutt:)

Síðustu dagar eru búnir að vera rólegir :)   Bara búin að vera að vinna og hanga með stellu og hinum vitleysingjunum:P   Akureyri 17 júní-helgin var sjúklega gaman:D allir voru þarna og ég skemmti mér rosalega vel:P Alltaf gaman að hanga með vinunum :D og djamma með þeim.. elska ykkur öll með tölu ;**

Dec 2, 2003Dec 3, 2003Dec 3, 2003Dec 3, 2003

Takk fyrir þessa helgi allir :D :D

Svo er búið að vera chill-party hjá Ingu.. :) eg var samt driver allt kvöldið þannig ég var voða lítið á staðnum :/ Það var líka chill hjá Hrönn og Ara í byrjun á júlí:) voða gaman hjá þeim báðum;) og margt krassandi gerðist þá helgi haha:D segi engin nöfn ;)

Jun 29, 2007Jun 29, 2007Jun 30, 2007Jun 30, 2007

Og síðustu helgi þá fóru ég, Stella, Anton, Alex, Óskar, mamma, pabbi og Begga uppá Hafravatn:P þriðja árið sem við tökum vini okkar með og bara til að leika okkur í vatninu og sonna:D Fórum á Jet-ski og á gúmmíbát og bara vera í vatninu:D vorum í svona hitabúning.. Maður fer í vatnið og þá er það svolítið kalt fyrst en svo þegar vatn er komið í búninginn þá hitar líkaminn vatnið og þá er manni ekki kalt lengur:D Við bundum stóran kút í jet-skiinn sem fer bara sjúklega hratt og svo vorum við vara dregin og þetta var svo gaman.. þegar maður dúndraðist í vatnið þá var maður bara að fletja kellingar:'D svo chilluðum við bara inni í bústað og töluðum saman :P við krakkarnir sváfum bara útí fellihýsi:) fórum á föstudegi og komum heim á sunnudegi.. 15 mínútna akstur.. vorum bara búin eftir þessa löngu ferð hahaha:D nei nei smá grín;) set myndirnar þegar ég nenni því:) skal samt drífa mig í því:P

Þessi helgi er víst liðin en þetta var drullu góð helgi:D Á föstudaginn vann ég til sirka fjögur... fór í ljós með stellu og svo heim í sturtu og sonna.. um hálf tíu kíktum við til Guggu í borgó.. það átti bara að vera chill en svo komu margir og fleiri :D og þetta endaði bara sem party :) Party-holderinn dó um hálf tvö haha og þá fóru allir út og flestir a klúbbinn :) skemmti mér rosalega vel heima hjá Guggu:) takk fyrir mig ;*

Svo á laugardeginum (semsagt í gær) þá var smá chill hjá mér:) Addi og Benni komu fyrstir... höfðu ekkert að gera greyin:D Andrea björg kom næst... Svo fóru strákarnir.. Gugga og Jóhanna komu eitthvað eftir tólf og svo bættust fleiri við, ég bara nenni ekki að telja það upp:D en það var mjög gaman:D og hlátursköstin....vá það var hlegið svo mikið hahaha... Hló svo mikið af Guggu :'D og þegar hun fékk hiksta hahaha... hun var eins og göltur váá´... ég vaknaði og mér var illt í hálsinum og maganum hahaha:D þetta var snilldar helgi og eg vill þakka öllum sem ég var með :D Tók eitthverjar myndir.. set þær á netið eins fljótt og ég get.....og þegar ég nenni:D

Og heyriði... síðasta fimmtudag þá keypti ég mér bíl ;) fékk hann á góðu tilboði:D Skoda Fabia 2001 árgerð... silfurlitaður :D í góðu ástandi og eg er mjög ánægð með hann:)

en ég ætla ekki að hafa þetta lengra:D við bara heyrumst og sjáumst:D I'm out ;**

[Magga Smára]

Jun 30, 2007


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 20:30:49 / Lísa

Spánn og HRÓSKELDA

HÆHÆ skutlu,

ætlaði bara að láta aðeins heyra í mér, er núna í danmörku hjá stóru systir. Ég byrjaði þetta ferðalag á því að fara til alekante (kann ekki að skrifa það) og var þar eina nótt og svo var ferðini heitið til sedella sem er sveitaþorp leeeeengst uppí fjöllunum á Spáni, það var tekinn heill dagur í það og við viltumst svona u.þ.b. 2000 sinnum, en þegar á staðin var komið var þetta æðislegasti og krúsínurúsínulegasti staður í geimi.(set myndir inn við tælifæri)

 Eftir viku á Spáni var farið til Danmerkur a.k.a Hróakeldu a.k.a í rigningar og rok rassgat með kúkalyktar keim í andrúmsloftinu . Þetta var samt allveg geðaðveikt og ég ætla aftur á næsta ári og reyna að fá vinnu á hátíðinni sjálfri, og fá þá frítt inn og HREINT tjaldstæði.       

 en núna er ég bara að kúra í nýju hootýbootý peysuni minni að bíða eftir maaaat. en ég kem heim á friday og ég býst við að einhverjar séu að fara að djamma!!!!!!

#SET MYDIR INN ÞEGAR AÐ ÉG KEM HEIM#

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 13:59:19 / Andrea sig

ja man

góðan daginn:D

 

ég ætla líka að koma með eitt blogg...:p enn ég skellti mér til ak eins og nú mjög margir og var það drullu gaman:D langt síðan að maður hefur nú djammað eitthvað af viti :/ :)

ég tók nú alveg slatta af myndum held ég og ætla að henda þeim hérna inna en ég þarf að fá smá hjálp frá möggu smára eða guggu til að kenna mér hvernig það system virkar :)

 

síðustu dagar hjá mér eru bara búnir að vera vinna,vinna og vinn...enda er ég að fara að fá heavy nice útborgað 8) alls ekki leiðinlegt :D setja smá í gjaldeyri og svona...er víst að fara í mollofamerica í sept í verslunarferð:D hlakka geðveikt til :D

 

Enn STELPUR  við erum ekki búin að hittast í heavy langan tíma :whut: er ekki málið að fara að hittast og taka smá djamma saman svona eins og þetta var alltaf hjá okkur??? getum hist heima hjá mér einhverja helgi í þessum mánuði ef þið eruð game?!? :)  þið kommentið bara á þetta...

 

enn þetta er ekki lengra í bili þar sem ég þarf að fara að gera mig til for da worken ;)

 

Andrea sig 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 17:16:11 / Guðrún

Djammlífstíll

Já góðan og blessaðan dagin ;)

 
Já ég skellti mér á djammið þessa helgina og má ég segja að það endaði ekki vel. Við stelpurnar ákváðum að byrja heima hjá mér og skella okkur svo í bæin. Þetta byrjaði allt mjög vel, ég og Silja mættum ferskar heim til mín með bros á vör og spenntar yfir því að byrja að drekka. Ég opnaði fyrsta bjórinn og þegar ég var komin á 3 var ég orðin svona rosalega hress. Stelpurnar þá meina ég, Anna, Lotta, Hrund og María komu rétt eftir að ég opnaði 3 bjórinn og skemmti ég konunglega yfir því. Það var ekki lítið djamm á okkur stelpunum þar sem það var rosalega langt siðan við opnuðum bjór saman. Ekki leið á löngu að ég var búin með allan minn bjór og lika freiðivínsfloksuna. Ég var orðin ágætlega vel í því þannig við ákváðum að drífa okkur niðrí bæ. Magga elskan kom og sótti okkur og man ég að ég var frekar leiðinleg og pirrandi haha því ég var orðin frekar vel í því, en takk fyrir að hafa skutlað okkur elskan :* En við vorum loksins komnar niðrí bæ eftir mikla skemmtun, dans og söng og á leiðinni niður laugarveginn rákumst við Silja á 2 vinnufélaga okkar og áður en ég vissi af voum við komnar á barinn að hella í okkur staupum með þeim eins og við hefðum fengið borgað fyrir það. Það fór alveg með mig. Vegna mikils minnisleysis þetta kvöld man ég seinast eftir því að ég var komin á Prikið og hitti ég ófáa þar. Ég var að undrast yfir því að staðurinn væri orðin svona huggulegur komin með port fyrir fólkið sem reykir og svona. En þar skemmti ég mér víst voðalega að sögn stelpnanna þanga til ég var á leiðinni upp tröppurnar og hitti ég þessa feituljótustórulessu, ljótlega sagt en ef hún væri í sama ástandi og ég mundi hún segja það sama um mig. Allavegana ég var á leiðinni upp tröppurnar og hún bara , " biddu fyrirgefðu, nenniru að fara frá, og ég með minn saklausa ef ekki bara puppyeyes lookið lít á hana og bara já er ég e-ð fyrir þér " og þá fékk hún þessa frábæru hugmynd að kasta mer niður tröppurnar og þegar ég segi kasta þá meina ég að hún greip í hendina á mér og hennti mér bókstaflega niður tröppurnar. Niður tröppurnar hoppaði ég og skoppaði og lennti á handriði, fólki, kassa og flr hlutum sem urðu þar a leið minni niður. Síðan reyndi að standa upp í fyrstu tilraun en endaði á því að hrasa á dyravörðin sem stóð þarna í bakdyrunum og hann reyndi að hjálpa mér en tók eftir þessum rosalegum áverkum sem á mér voru. Ég reyndi að standa upp aftur en hrasaði niður og í 3 tilraun tókst mér að standa upp. Starfsfólkið sá þetta allt og reyndi að hjálpa mér sem mögulega gat en ég fann ekki fyrir verkjunum vegna áfengismagni sem var í likamanum. þetta endaði nú ekki þarna. Ég var á fullu að skemmta mér þanga til ég uppgötvaði að ég væri búin að týna símanum mínum og þá fór kvöldið alveg með mig. Þetta var 2 síminn minn á stuttum tíma og ég var ekki einu sinni búin að eiga hann í 2 vikur. Ég varð svo reið að ég reif í Silju og sagði henni að koma mér heim haha og þökk sé Birgi endaði ég dauð heima og þegar ég vaknaði dagin eftir þá var ég eins og ég væri lömuð, ég gat ekki labbað því mér var svo illt í bakinu, enda var það blátt og marið með stóra kúlu á hryggnum, lærið á mér var stórblátt og hendin á mér bólgin og marin. Já krakkar mínir svona endaði skemmtilega djammið mitt. Enda mætti segja að ég hafi orðin frekar full seinust helgar og eitthvað slæmt búið að henda mig þannig að ég held að ég ætli aðeins að miknnka áfengið en djammið heldur áfram eftir 3 daga þegar það er aftur komin föstudagur ;)
 + +  = ofurölvun
Já kæru lesendur, þetta er litla bæjarsagan mín. Ef þið farið eftir mínum ráðum mæli ég ekki með því að blanda þessum öllu saman og endilega passið uppá símana ykkar. Ég vill einnig þakka :
  • Prikinu, fyrir að hafa fundið símann minn og hafa geta skemmt mér svona vel þar haha.
  • Starfsfólkinu á Prikinu þar sem það er æðislegt.
  • Birgi fyrir að hafa reddað mér heim.
  • Önnu fyrir að hafa hringt endalaust í símann minn þanga til hún fékk einn starfsmanninn til að svara honum.
  • Möggu sætu fyrir að hafa skutlað okkur.
  • Og að lokum stelpunum fyrir að hafa skemmt sér svona vel með mér haha :'D
En þetta verður ekki lengra í bili. Ætla fara gera eitthvað skemmtilegt.
Ég er einig búin að setja inn myndir frá bíladögum og kvöldinu
Þanga til Næst, Gugga öfurölvi kveður ;'D

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 19:07:19 / Lísa

ég duleg líka.... já

Jæja þá ætla ég líka að segja frá helgini minni, er það ekki bara góð regla að koma alltaf með helgarblogg og skygnast í það sem hinar eru að gera, því ekki erum við að gera það saman, væll (miss jús)

 

En já ég fór ekki á bíladaga eins og þið hinar heldur upp í bústað með Stebba Lísu (eldri) Jóa og Atla, en þeir voru að veiða þannig að ég og Lísa hin fórum á kojufyllerý eða trampólínfyllerý, við einmitt löbbuðum með trampólínið svona 30 metra blind fullar, til að koma því nær bústaðnum og nær áfenginu sem bragðaðist einum of vel í þessum glösum sem við vorum með sem komst svona einn lítri í og maður fattaði ekki hvað maður var búin að drekka mikið:D svo var bara skellt sér í bikiníið og farið út að hoppa, búnar að mála okkur einu sinni núna, ákveðum svo að fara aðeins inn í hlýjuna og mála okkur aftur svo var étið. Svo ákveðum við að fara á sveitaball um 3 um nóttina (sveitaböll loka um 4) þar var saman komið allt hvíta drasl landsins!!!! og ég sá ÓGEÐSLEGASTA strák sem ég hef á ævi minni séð!!

Sunnudagur Þynnka, sveitur matur, jarðskjálftar og sól og sumar :D

En núna eru bara 6 dagar þanngað til að ég fer til spánar og svo til dk :D:D:D:D:D er búin að vera að vinna eins og geðsjúklingur til að eiga pening!!! Kem heim FÖSTUDAGINN 13 júlí og fyrir ykkur sem vita það ekki þá er það óhappadagur!!!!

 

Svo eru það bara eyjar!!!! hverjar ætla á þjóðhátíð????


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 20:52:02 / Silja

Bíladagar og fl:)

 

Neineinei halló:D

Ég get nú ekki sagt annað en að það var frekar langt síðan ég bloggaði en ætla taka mig til i smettinu og blogga..

Um helgina voru bíladagar á Akureyri og skellti maður sér auðvitað á þá og ég sé ekki eftir því, geggjuð helgi:haha:  Ég fór með Guggu, Birgi og Ragnari bróðir Birgis og gistum við á Gistiheimili Akureyrar, geðveikt gistiheimili með þæææginlegum rúmum og geðveikt kósý.

Komum á föstudeginum kl sonna 9 um kvöldið og byrjuðum að drinka og fórum svo uppá tjaldsvæði að djamma mere og mere. Hittum fullt af fólki sem gisti þar, rotuðumst svo í þessu þægilegu rumum kl einhvað man ekki. Á Laugardeginum vöknuðum við kl sonna 1 og gerðum okkur til og fórum út, þá leið mer eins og það væri komin til útlanda geðveikt heitt og gott veður sól og læti. Fórum á Subway og rúntuðum um bæinn fórum svo í listagarð i sólbað í einhvern tíma:) Svo um kvöldið var drukkið og verið í bænum og á tjaldsvæðinu og sonna, þar fór vinur Birgis af kostum og byrjaði að baða sig uppúr bjór og drekkandi bjór af pitsu, kastandi sér á öll tjöldin á tjaldsvæðinu og eg veit ekki hvað og hvað og það var ekkert lítið hlegið og erum ég og gugga en að hlæja af þessu haha;) sváfum mjög mikið svo bara á sunnudeginum og lögðum svo í hann kl sonna 6 og klikkuðum ekki á að fá okkur sveittan hamborgara í staðarskála:)

Svona var þá þessi helgi í stuttum orðum:)

En hvað segiði stelpur við ætlum ekkert að hætta með blessuðu síðuna:P Gleymum bara þessu bloggi þarna fyrir neðan hehe;)

En nenni ekki að hafa þetta lengra í bili, þetta var þó blogg. Og eitt enn það fara að koma myndir frá þessari helgi bráðlega er þaggi gugga;)?

Silja :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 00:27:48 / Magga Smára

stelpur ATH

Heyriði.. ég og stella vorum að tala saman áðan...  þar sem enginn er að gera neitt á þessa síðu þá vorum við að spá að þær sem vilja hætta á síðunni hætta.... skrifið bara í skoðanir.. eg og stella nennum allavegana að vera áfram með hana..... Þúst þið hafið djammað með krökkunum í skólanum ykkar og örugglega teknar eitthverjar myndir... afhverju setjiði það ekki á þessa síðu líka?? eg hef alltaf sett myndirnar frá borgó-partyum á þessa síðu... en þar sem enginn nennir að blogga og sumar komnar á nýja síðu og nenna ekki að vera með þessa og vilja hætta þá skrifiði bara í skoðanir;)    en ef við viljið halda áfram að vera á síðunni nenniði þá að vera virkari :D  viljum ekki enda eins og prinzarnir muhahahaha ;D

 Magga Smára & Stella


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 17:28:21 / Magga Smára

Magga mætt:)

Heyriði:D er ekki komin tími á blogg frá mér:) eða bara blogg á þessa síðu.. þar sem allir eru hættir að blogga... Eydís, Magga Sveins, Dísa, Andrea G, Silja, Stella... Á ekki að fara að skella inn bloggi haha:D??

En allavegana:) síðustu dagar hafa ekkert verið spes.. fékk einkunnirnar :) náði öllum nema stærfræði :/ lærði ekkert í þessu fagi... var alltaf að gera eitthvað allt annað.. vitleysa hjá mér en þetta er búið.. náði náttúrufræði hahaha.. það kom mér á óvart því mér gekk svo illa í náttúrufræði á þessari önn:D hæðsta einkunnin min var 4 í kaflaprófum:/ en ég las alla bókina og glósaði og glósaði fyrir þetta próf.. og fékk 5 haha:D en náði því þannig bæbæ nát113 :D hæðsta einkunnin var 7 hihi.. í félagsfræði :) en þetta er búið og það sem er að taka við er suuuuumarfrí people:D

En það sem ég mun vera að gera í sumar er bara að vinna og slappa af.. eg mun vinna í fyrirtæki sem heitir Í einum grænum.. vann þar líka síðasta sumar.. þetta er matarfyrirtæki.. Ostahúsið er líka þarna... það eru gerðir ostrúllur, osta-desertar, ostakökur og svo í einum grænum eru t.d. kartöflubátar, grillsveppir, litla gulrætur, Jóa fel salöt.... svo eru auðvitað grænmeti þarna og fleira fleira:) þetta er ekkert það skemmtilegasta í heimi en þetta er ekki erfitt:D vinn svona átta til fjögur, fimm.. fer bara eftir því hvað það er mikið að gera:)

Heyriði.. síðustu helgin min voru ágæt bara:) á föstudaginn fór ég bara í vinnuna og svo hitti ég stelpurnar:D Jóhönnu, Kristínu, Ingu og Stellu.. tókum smá rúnt áður en við fórum svo til Grétars og Andrea og Hrönn bættust í hópinn:) svo hringdum við fullt af fólki og héldum partý hahaha:D flestir þarna úr Borgó en mér fannst þetta fínt:D Grétar þekkti auðvitað eitthverja ;* á eftir að setja myndirnar inn:) þær koma þegar ég nenni að setja þær á netið.. er búin að setja nokkrar en svo datt internetið út og ég nennti ekki að halda áfram... Á Laugardaginn þá fór ég uppá Hafravatn:) það var verið að laga bústaðin og vinna í honum.. Borðaði þar og svo skutlaði Villi mér og Söru heim.. svo fórum við stelpurnar heim til Andreu Björg:) Ég, stella, hrönn, jóhann og kristín kom seinna um kvöldið.. Ari elskan hafði ekkert að gera þannig hann bættist í hópinn:) við sátum bara og spjölluðum saman inní eldhúsi:D Oooog svo á sunnudaginn þá... gerði ég eitthvað leiðinlegt haha:D man ekki hvað;) var bara heima held ég:)

Svo síðustu daga er ég bara búin að vinna og hitti svo Stellu baby bæði kvöldin :) og í kvöld veit ég ekki hvað ég ætla að gera.. nenni voða lítið að gera eitthvað.. þægilegt að kósýast hérna heima:D

En næstu helgi vera bara chill helgi... á engan pening eða neitt:( get ekki beðið eftir að eiga pening!!! það verður sweet:D á laugardaginn er reyndar útskriftarveislan hennar Beggu systir.. Hún er að útskrifast úr Verzló ;) verð eitthvað að þjóna en veislan er búin kl átta... eitthver koma að leika? ;D haha

En vá hvað ég hef ekkert að segja og enginn nennir örugglega að lesa þetta:D haha.. en maður verður að koma með blogg á síðu sem maður er á;) annars er ekkert gaman að hafa mann :) og Heyriði.. svo er 17 júni að nálgast... maður ætlar að skella sér á bíladaga á Akureyri:D þriðja árið í röð :)  það var svo gaman í fyrra:D:D

Burn out         -              Hahaa ég og Sindri               -          Ég og Gugga ;*

 

En nenni ekki að hafa þetta lengra:) setti eitthvað smá í slúðrið :) skal svo fara að drífa mig að setja myndirnar á netið þeir sem voru í partýinu :)  og svona rétt í endann vil ég óska Togga til hamingju með afmælið :) ;*

En hey stelpur.. allar að svara í skoðanir:D   hvar verðiði að vinna í sumar:) og ef þið farið í eitthvað frí, hvert fariði :D bara aðeins að forvitnast ;)

I'm out ;)

[Magga Smára]


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23